HK – KKF Þórir, 95 – 79
7. mars 2009 kl. - Helgi HrafnÍ dag spilaði HK heimaleik gegn KKF Þórir. Fyrir leikinn voru HK og KKF jafnir á stigum, eða með 6 stig í neðsta og næst neðsta stæti. HK þó með betri markatölu. Ég mætti að sjálfsögðu á leikinn og skrifaði niður stöðuna eftir hvern leikhluta, nema 3ja, þar sem ég var að spila í þriðja og fjórða.
HK byrjuðu undir eftir fyrsta leikhluta, og hélt það aðeins áfram í örðum hluta. En, þegar annar leikhluti var aðeins kominn af stað vöknuðu HK menn til lífsins og fóru að skila góðum leik. Vörnin varð betri og fleiri stig í kladdann. Þetta hélt áfram í þriðja leikhluta og stækkaði bara bilið. KKF Þórir sá aldrei til sólar miða við framistöðu HK. Í fjórða leikhluta náði HK mesta forskotinu, eða 20 stigum.
Leikhlutarnir fóru svona
- HK 16 – 18 KKF
- HK 43 – 38 KKF (30 – 20)
- HK ?? – ?? KKF
- HK 95 – 79 KKF
Næsti leikur HK er sunnudaginn 15. mars aftur gegn KKF, en þá í Hagaskóla.
ps. Ef HK sigrar sína tvo síðustu leiki, gegn KKF og ÍG, og UMFÁ tapar sínum síðasta. Kemst HK í fjórða sæti í sínum riðli og þar með áfram í 8 liða úrslit. Síðasti leikur UMFÁ er einmitt gegn KKF núna á mánudaginn 9. mars. UMFÁ hefur nefnilega tapað þrem síðustu leikjum, gegn Leikni, HK og ÍG. Á meðan þeir sigruðu KKF á útivelli 78 – 99. Við krossleggjum alla fingur og tær.
8. mars 2009 kl. 21:56
Þú stóðst þig rosavel ástin mín
12. mars 2009 kl. 20:37
Blogga meira, minna msn vændi!