Styttist í flutninga
29. janúar 2009 kl. - Helgi HrafnJæja .. síðasta körfubolta æfingin mín með Körfuboltafélagi Dalvíkur var í kvöld. Þetta var góð æfing, með góðri mætingu. Aftur á móti kemur Aníka fyrir hádegi á morgun og þá verður farið í það að klára helstu mál fyrir flutninga. Svo byrjar þetta á laugardaginn, því þá kemur flutningabílinn og við fyllum á hann. Síðan er ekið suður á sunnudaginn og flutt inn.
Þetta verður ekki mikið lengra hjá mér í dag. Maður er svo bissí þessa dagana. Allir að ná á manni svona “rétt áður en maður flytur”.
Takk í bili.
Efnisorð: Asparholt, flytja, Körfubolti
30. janúar 2009 kl. 03:02
jahh þú stendur þig allavenna í þessum blogg skrifum á dag
?
svo bara 2 dagar þangað til þú flytur…spenntur
30. janúar 2009 kl. 08:36
Tja spenntur og ekki spenntur. Mig langar ekkert rosalega að fara frá Ak, en við komum aftur. Mar veður nottla að fylgja fölskyldunni.