Körfubolti með UMFÁ
4. febrúar 2009 kl. - Helgi HrafnÉg mætti á körfuboltaæfingu með Ungmennafélagi Álftaness (UMFÁ) í kvöld. Ég verð nú að segja að þetta eru stífari æfingar en það sem maður hefur verið að stunda með Dalvíkur hópnum. Æfingin er 1 klst og 50mín. Í upphafi voru það 100 skota skotæfing, síðan 13 manna hraðaupphlaup, hlaupa 2svar sinnum að hálfum og svo heilan völl, með 20 armbeygjum og 20 maga á milli.
Eftir þetta tók “alvarinn” við hjá liðinu og ég var “hvíldur”. Ég skildi það ósköp vel þar sem liðið er að keppa í annari deildinni og það þarf að halda liðsmönnum við efnið. Þar sem mætingin var nokkuð góð (18 manns), þá spiluðu þeir með 3x 5 manna lið inná, þar sem sitt hvort liðið var í vörn og þriðja liðið spilar sókn á milli karfa. Ef sóknin skorar fær hún að halda áfram í sókn, annars er skipt. Á sama tíma þarf vörnin að skipta út manni ef sóknin skorar. Þegar spilað var maður á mann, þurfti sá varnarmaður sem átti að dekka þann sem skorar að fara út af. Svo má ekki gleyma því að fyrsta liðið í 7 sigrar, og hin liðin þurfa taka suicide. Að lokum oru svo spilaðir tveir leikir.
Gaman að þessu, spurning hvort maður fái að æfa með þeim restina af vetrinum.
Efnisorð: Körfubolti
5. febrúar 2009 kl. 13:15
Ánægður með kallinn að drífa sig bara beint á körfuboltaæfingu
Þú verður fljótur að komast í fínt form ef æfingarnar verða eins og þessi!
5. febrúar 2009 kl. 13:26
Já sæll… þetta er nú ekkert ólíkt prógraminu hjá okkur
en þú verður orðinn helköttaður í vor ef þú heldur áfram.
baráttu kveðjur frá okkur í körfunni
5. febrúar 2009 kl. 13:54
ég tek hann svo með mér í tanið Ingi
5. febrúar 2009 kl. 14:10
Já, það er bara keppnis! maður á ekki eftir að þekkja þig næst þegar við hittumst, þú verður orðinn þvílíki íþróttanördinn
5. febrúar 2009 kl. 23:02
Já djöfull held ég að Helgi væri flottur með gott Tan…. þá nýtur tattúið sín miklu betur