Stjarnan – Þór Ak

8. febrúar 2009 kl. - Helgi Hrafn

Við hjónin fórum á körfuboltaleik Stjörnunnar – Þór Akureyri. Ég var búinn að vera í sambandi við Jón Orra, einn leikmann Þórsaranna, um að ég mundi mæta á leikina þeirra hérna í borginni.

Þessi leikur var rosalega spennandi á köflum. Að undanskildum fyrsta leikhluta hafði Stjarnan alltaf yfirhöndina í leiknum. Þór náði samt að jafna nokkrum sinnum, en Stjarnarn gaf þá bara í á ný. Að mínu mati voru Þórsarar að reyna við 3gja stiga skot af allt of löngu færi, og náðu svo of fáum sóknarfráköstum. Á meðan Stjarnan setti niður hverja 3gja stiga körfuna. En þegar ég skoða tölfræðina á kki.is sé ég að bæði liðin voru með 14 3gja stiga körfur, en Stjarnar með 48,3% nýtni og Þór með 40%. Baráttuandinn í Þórsurum dugði ekki til sigurs í þessum leik, og heimamenn sigruðu með 14 stiga mun. Lokatölurnar voru Stjarnan 110 – 96 Þór.

Þetta tap er sjöunda tap Þórsaranna í röð og eru menn orðnir hræddir við fall í deildinni.

Koma svo Þórsarar!

Stjarnan - Þór

Deila með öðrum:
  • Facebook
  • Twitter
  • Digg
  • StumbleUpon
  • del.icio.us
  • Google Bookmarks
  • Tumblr
  • LinkedIn
  • email

Efnisorð: , ,

Athugasemdir (5) við “Stjarnan – Þór Ak”

  1. Aníka segir:

    jamm, þetta var góður leikur. Þórsararnir hefðu mátt hanga aðeins betur í Stjörnunni undir lokin, en það gekk ekki alveg upp.

  2. Hrafn segir:

    Helvítis fokking fokk, það er eiginlega það eina sem hægt er að segja um þennan leik!

  3. Helgi Hrafn segir:

    @Aníka: Jamm, það var rosalega spennandi þegar síðasti leikhlutinn var hálfnaður, þá munaði bara nokkrum stigum á að Þórsararnir náðu að jafna á ný. En þá fóru Þórsararnir að missa menn út af vegna villna.

    @Hrafn: Hvar varst þú? Er það satt sem ég heyri að þú sért með brjósklos, og bakið er að drepa þig?

  4. Hrafn segir:

    Fréttir af andláti mínu eru stórlega ýktar ;) Hinsvegar er bakið í einhverju rugli, fór samt á fyrstu æfinguna í nærri 2 vikur í gær og bakið hélt. Sem er jákvætt, haha. Þitt nýja lið stóð sig ekki nægilega vel í gær, fórstu á leikinn?

  5. Helgi Hrafn segir:

    Nei, ég mætti ekki á leikinn. Ég vissi ekki einu sinni af leiknum. Ég er ekki enn búinn að heyra í Gísla, sko.

    En leikurinn var spilaður í næsta húsi við mig. Ég hefði betur átt að mæta, mar :(

Skrifa athugasemd

/>

/>

Leyfilegt XHTML: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong> <pre lang="" line="" escaped="">