Twitter í stað RSS (eða ATOM)
16. maí 2009 kl. - Helgi HrafnÉg er farinn að nota Twitter frekar mikið. Fylgjast með því hvað félagarnir eru að gera, hér heima og úti í heimi. Ég er líka að fylgjast með því sem vissir bloggarar eru að skrifa, og að sjálfsögðu sumar fréttasíður sem ég les. Um daginn var ég að horfa á Diggnation og þar kom um upp skemmtileg pæling, “Að nota Twitter í stað RSS”.
Að sjálfsögðu hafa báðar þessar þjónustur ákveðin hlutverk. En fyrir einstakling sem er að fylgjast með fréttum á netinu, eða bloggurum héðan og þaðan, þá er tilvalið að nota frekar Twitter. En til þess þurfa fréttasíðurnar og bloggaranir að vera á Twitter og senda þangað efni þegar eitthvað nýtt kemur á vefinn þeirra.
RSS hefur sambærilegt hlutverk gagnvart einstaklingnum, að upplýsa lesandann þegar nýtt efni er komið á netið, en þar sem RSS getur veitt meiri upplýsingar en Twitter, þá held ég að það muni aldrei hverfa. Með RSS getur veitandinn leyft notandanum að komast í frekari upplýsingar, og til dæmis birt heila bloggfærslu. En á meðan Twitter býður bara upp á 140 stafi eða minna. Skemmtilegt að segja frá því að Twitter býður upp á RSS veitu af því sem hver notandi er að senda inn.
Mín niðurstaða er sú, að Twitter mun aldrei koma í stað RSS, einfaldlega vegna þess hvort um sig hefur ákveðnu hlutverki að gegna. Aftur á móti tel ég það upplagt fyrir fréttaveitur og bloggara að nýta sér Twitter til að koma sínu efni á framfarir. Ekki síður en að fréttafíklarnir og blogggleypirnir noti Twitter til að komast í það nýjasta sem fyrst.
Nú þegar eru Íslenskir fréttamiðlar farnir að nota Twitter
- Akureyri.net – @akureyri – Lesendur geta sent fréttir inn á Twitter
- AMX.is – Lesendur geta sent fréttir inn á Twitter
- Eyjan.is – @eyjan
- Maclantic.is – @maclantic – Lesendur geta sent fréttir inn á Twitter
- Mbl.is – @mblstorfrettir og @morgunbladid
- Pressan – @pressan – Lessendur geta sent inn á Twitter
Hvað er Twitter
Twitter er örblogg samfélag þar sem skráðir meðlimir geta fylgjst með því hvað aðrir meðlimir eru að gera, eða skrifa um, í 140 stöfum eða minna. Sem skráður meðlimur getur þú fylgjst með hverjum sem er á Twitter einfaldlega með því að komast á Twitter síðu þess aðila og velja þar að fylgja honum. Síðan til þess að sjá hvað “vinir” þínir eru að senda inn ferðu á Twitter síðuna þína eða notar eitthvert af þeim fjölmörgu Twitter forritum sem eru í boði, sbr. http://twitter.com/downloads
ps. Þú getur fylgst með mér á Twitter, @harabanar