Íslensku vefverðlaunin 2009
12. febrúar 2010 kl. - Helgi HrafnÞeir sem lásu bloggið mitt fyrir ári síðan vita að ég fékk tækifæri til að vera í dómnefnd íslensku vefverðlaunanna það árið en gat ekki tekið þátt vegna flutninga til Reykjavíkur. Ég gagnrýndi einnig harðlega þá vefi sem dómnefnd tilnefndi til úrslita það árið. En í ár fékk ég annað tækifæri og sat í dómnefnd meðal sjö annara úrvals dómara á sviði vefiðnaðar, þau voru:
- Anna Helgadottir, Vefstjóri Marel
- Katrín Atladóttir, Viðmótsforritari hjá CCP
- Kristín Eva Ólafsdóttir, Hönnunarstjóri hjá Gagarín
- Magnús Þór Bjarnason, Stjórnandi hönnunar og upplýsingahögunar hjá Hugsmiðjunni
- Valur Þór Gunnarsson, sérfræðingur í vefdeild Arion Banka
- Ásgeir Freyr Kristinsson, Forritari hjá Skýrr
- Þór Sigurðsson, Vefstjóri og Eigandi Barnalands
Sigurvegarar íslensku vefverðlaunanna eru:
- http://www.ja.is – Besti íslenski vefurinn og Besti þjónustu- og upplýsingavefurinn
- http://www.nikitaclothing.com – Besta viðmót og hönnun og Besti sölu- og kynningarvefurinn (undir 50)
- http://www.hugmyndaraduneytid.is – Frumlegasti
- http://play.eveonline.com – Besti sölu- og kynningarvefurinn (yfir 50)
- http://www.skjarinn.is – Besti afþreyingar- og fréttavefurinn
- http://www.gummisig.is – Besta blog/efnistök/myndefni
- http://m.ja.is – Besti hand-smátækja vefurinn
- Landsbankinn: Náman – Besta markaðsherferðin
Ég er mjög ánægður með þessar niðurstöðurnar og það er greinilegt að þessi verðlaun eru að stækka. Á ráðstefnunni sem var á vegum SVEF um markaðsetningu á netinu og afhenginu verðlaunanna í dag var hátt í 150 manns, og var þessi hátið rosalega flott. Í lokin vil þakka stjórn SVEF kærlega fyrir mig og í leiðinni óska sigurvegurum innilega til hamingju.
Bætt við eftir birtingu – Ég spjallaði meðal annars við Gunnar Hómlsteinn í dag og honum fannst kominn tími til þess að íslensku vefverðlaunin hafi sérstakann flokk fyrir vefforrit. Sem dæmi má nefna Vaktarinn, Raunveruleikurinn.is, Herstjórinn og fleiri forrit. Þessu er ég sammála og vona að stjórn SVEF fari í málið.