Kveikja á network timemachine backup
26. febrúar 2009 kl. - Helgi HrafnÉg lenti í því í dag að einn harðdiskurin hjá mér “dó”. En þegar ég skoðaði þetta nánar þá komst ég að því að SATA stýringin sem þessi diskur var tengdur við, var dauð. Þannig ég fékk mér nýja og tengdi allt á ný. Ekkert sérstakt við það, svo sem. Nema hvað að diskurinn sem ég hélt að væri dauður innihélt allar ljósmyndir fjölskyldunnar, og ég var ekki búinn að afrita tvö síðustu árin. Nú er ég búinn að ganga frá því.
Aftur á móti fór ég að skoða mig um á netinu, þar sem mér datt í hug að athuga hvort hægt væri að notast við Time Machine á Mac yfir samba share. Þá rakst ég á þessa blogg færslu http://blog.xemantic.com/2008/04/timemachine-backups-on-smb-share.html
Lausnin er einfaldlega að kveikja á möguleikanum með því að keyra skipunina hér fyrir neðan í terminal;
defaults write com.apple.systempreferences TMShowUnsupportedNetworkVolumes 1
og þá er hægt að velja til dæmis samba shared diska til að vera Time machine backup diskurinn.