Einn góður á fimmtudegi
19. mars 2009 kl. - Helgi HrafnÉg horfði gagnrýnum augum á konuna, sem ég hef verið giftur í 30 ár og sagði: “Heyrðu elskan, fyrir 30 árum áttum við ódýra íbúð, ódýran bíl, við sváfum á sófanum í stofunni, horfðum á 10 tommu svart/hvítt sjónvarp og á hverju kvöldi iðkaði ég bólfarir með viljugri 25 ára stelpu.”
Ég hélt áfram, “Núna á ég 80 milljóna hús, 15 milljóna bíl, rúm á stærð við skeiðvöll og 50 tommu flatskjá, en þarf að sætta mig við það á hverju kvöldi að fara í bólið með þreyttri 55 ára konu. Ég fæ ekki séð að þú hafir haldið í við þróunina hér.”
Ég verð að játa að ég á skynsama konu. Hún leit snöggvast á mig og sagði um leið: “Ekki vandamálið , drífðu þig bara út og finndu þér 25 ára viljuga stelpu. Ég sé um að þú fáir hitt aftur. Ódýra íbúð, bíldruslu og ódýrt svart/hvítt sjónvarp!” Eftir þessi 30 ár, veistu að ég meina það sem ég segi. Er konan mín ekki frábær? Grái fiðringurinn hvarf á einu andartaki!
Þessi brandari barst mér í tölvupósti í dag frá henni Hrefnu Hreinsdóttur.